Beint á leiðarkerfi vefsins

Fundargerðir öldungadeildar 2009

  

Öldungadeildarfundur 18. nóvember 2009

Fundur með dómsmála- og mannréttindaráðherra Rögnu Árnadóttur.
Umræðuefni:
Lögregla, ákæruvald, dómstólar, fangelsi: Aukin viðfangsefni í kjölfar bankahrunsins.
 
Hrafn Bragason, formaður deildarinnar, setti fundinn kl. 15:00 og bauð ráðherra velkomina.
Ráherra hóf mál sitt á því að ræða fjárhagslegs stöðu réttarvörslukerfisins í þeim niðurskurði ríkisútgjalda sem nú lægi fyrir.  Niðurskurður um 8% lægi fyrir á starfsemi stofnana ráðuneytisins en jafnframt væri fyrirsjáanlegt að aukið álag væri á flestum stofnununum.  Þannig biðu nú 240 menn afplánunar dóma sinnar og 1600 manns sem þyrfti að beita vararefsingu vegna ógreiddra sekta biðu eftir plássi.
Til skoðunar væri að rýmka heimildir til að beita samfélagsþjónustu og hugsanlega að taka upp rafræna vöktun.
Skera þurfi niður í lögreglunni en ekki sé síðri vandi fyrirsjáanlegur hjá dómstólunum því áætað er að aukning mála sem komi til dómstólanna á næsta ári verði ekki undir 1000.  Komi sú aukning einkum til vegna bankahrunsins.  Fyrirhugað væri að fjölga tímabundið starfsfólki dómstólanna og einnig ná fram hagræðingu með því að gera landið að einu dómsumdæmi.  Þannig nýttust betur starfskraftar þeir sem fyrir hendi eru.
Til að mæta þessum kostnaði taldi ráðherra nauðsynlegt að hækka verulega dómsmálagjöld sem hefðu ekki hækkað síðan 1991.
Að  lokinni framsögu ráðherra þakkað formaður ráðherra hennar erindi og ræddi nokkuð ástandi, einkum að því varðar dómsmálin.  Gaf hann síðan orðið laust en bað jafnframt Helga I. Jónsson formann dómstólaráðs að rekja nokkuð horfur í starfi dómstólanna á komandi ári.  Lýsti Helgi ástandi mála og hvað könnun meðal lögmanna hefði leitt í ljós um væntanlegan málafjölda.
Síað tóku tilmáls Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari,  Björn Friðfinnsson, fv. ráðuneytisstjóri,  Þorleifur Pálsson fv. sýslumaður,  Hjörtur Torfason, fv. hæstaréttardómari,  Ólafur W. Stefánsson,  fv. skrifstofustjóri og Hörður Einarsson, hrl.
Ræddu þeir vanda dómstólans og hvað væri helst til ráða, svo sem hækkuð dómsmálagjöld,  smámálameðferð, sáttanefndir, forsjármálameðferð og hópmálssókir í samhljóða skilanefndamálum.
Að fjörugum umræðum loknum tók ráðherra til máls og síðan þakkaði formaður ráðherra komuna og sleit fundi kl. 16.30.


Öldungadeildarfundur 28. október 2009

Fundarefni: Málsóknir erlendra fjármálastofnana
Hrafn Bragason, stjórnarformaður öldungadeildarinnar, setti fundinn kl. 15:00, kynnt fundarefnið og bauð frummælanda, Baldvin Björn Haraldsson, hrl. á lögmannsstofunni BBA/Legal, velkominn.
Baldvin rakti ástæður fyrir því að erlendir bankar sækja rétt til að fá lánveitingar sínar viðurkenndar sem skuldir sem nýju bankarnir eigi að standa skil á en ekki bú gömlu bankanna.  Peningamarkaðslán erlendu bankanna  til bankanna eigi að hafa sömu stöðu og innlán almennra innistæðu eigenda. 
Þá rakti hann einnig hvers vegna erlendir lánardrottnar SPRON er ekki sáttir við yfirtöku  Fjármálaeftirlitsins á sparisjóðnum.  Þeir telji að ekki hafi verið fyrir hendi neyðarástand þegar yfirtakan fór fram.
Að loknu erindi Baldvin tók til máls Arnar Þór Jónsson, hrl.. sem hefur stefnt ríkinu f. h. þýsks banka sem telur að aðgerðir ríkisins í bankakerfinu á grundvelli neyðarlaganna standist ekki .   Gerði hann grein fyrir sjónarmiðum þeim sem fram hafa komið varðandi endurbyggingu fjármálakerfisins eftir bankahrunið.
Formaður þakkaði frummælanda og öðrum málshefjendum og sleit síðan fundi kl. 16:30. 


Aðalfundur Öldungadeildar Lögfræðingafélags Íslands 2009

Ár 2009, miðvikudaginn 1. apríl kl. 15:00 var aðalfundur öldungadeildarinnar haldinn í sal Lögmannafélags Ísland að Álftamýri 9.
Formaður deildarinnar Hrafn Bragason setti fundinn, sem er fyrsti aðalfundur eftir stofnun deidarinnar sem stofnuð var 28. nóvember 2007, og tilnefndi sem fundarstjóra Björn Friðfinnsson.
Fyrsta mál á dagskrá var skýrsla stjórnarinnar sem formaður flutti en hún lá jafnframt frammi og var dreift til funarmanna. (skýrslu má sjá undir öðrum lið á heimasíðunni)
Engin óskaði að taka til máls um skýrslu stjórnarinnar.
Annað mál á dagskrá samkvæmt lögum deildarinnar var skýrsla um fjárhag.
Formaður upplýsti að ekki væri gerður ársreikningur fyrir deildina þar sem deildin starfar sem hluti af Lögfræðingafélagi Íslands og árgjald deildarfélaga til LÍ kemur í stað árgjalds til deildarinnar. Formaður sagði að nú væri 48 skráðir félagar í deildinni.
Næsta mál á dagskrá var stjórnarkjör.
Á stofnfundi var samkvæmt 6. gr. laga félagslaga Hrafn Bragason kjörinn til tveggja ára en Auður Þorbergsdóttir og Jón Thors til eins árs. Formaður lagði til að Auður og Jón væru endurkjörin til tveggja ára.
Í varastjórn voru kjörin á stofnfundi Sveinbjörn Hafliðason til tveggja ára en Elín Norðdahl og Jakob R. Möller til eins árs. Formaður lagði til að Elín og Jakob væru endurkjörin til tveggja ára.
Samkvæmt 7. gr. skal sex manna öldungaráð kjörið á aðalfundi til eins árs í senn.
Á stofnfundi var ákveðið að varastjórnarmenn sætu einnig í öldungaráði en auk þeirra voru kjörin í öldungráðið Guðrún Erlendsdóttir, Ólafur W. Stefánsson og Ragnhildur Helgadóttir. Formaður lagði til að öldungaráðið væri endurkjörið til eins árs.
Tillögur formanns vor samþykktar með lófataki.
Í fundarlok kynnti formaður síðasta viðfangsefni vertradagskrár deildarinna sem er ferð sunnudaginn 17. maí n.k. til Landnámssetursins í Borgarnesi á sýninguna Stormar & Styrjaldir með Einari Kárasyni rithöfundi..
Ekki voru fleiri mál á dagskrá aðalfundarins og lauk aðalfundarstörfum kl. 15:15.
Að loknum aðalfundarstörfum hófst fræðafundur þar sem dr. Þorkell Helgason, stærðfærðingur, og ráðgjafi stjórnvalda til margra ára um kosningalöggjöf flutti erindi um kosningar sem hann nefndi
Gagn og gaman af kosningafræðum, psefólógíu.
Hann hóf mál sitt með því að svara spurningunni um hvað orðið psefólógía merkir.
Upplýsti hann að það væri grískt orð sem merkti steinkast en í Grikklandi til forna var steinum varpað til að útkjá kosningu.
Efni erindisins skipti hann í þrjá hluta. Fyrsti hluti: Af hverju er svona flókið að reikna menn á þing?. Annar hluti: Persónukjör af ýmsum toga. Þriðji hluti: Til umhugsunar.
Hann ræddi fyrst þróun laganna um kosningar til alþingis frá 1904 til dagsins í dag og útskýrði hin ýmsu kerfi sem sem notuð hafa verið til að velja þingmenn og rakti kosti þeirra og galla. Síðan rakti hann hina ýmsu möguleika til að framkvæma kosningu með persónuvali og gerði grein fyrir því hvernig persónukjör væri framkvæmt í ýmsum Evrópulöndum . Að lokum setti hann fram hugmyndir um hugsanlegar grundvallarbreytingar á fyrirkomulagi á kosningkerfisins hér á landi.
Fundi lauk kl. 16.40

 


Öldungadeildarfundur 11. febrúar 2009

Fundarefni:  Skilanefndir bankanna og störf þeirra
Lárentsínus Kristjánsson, hrl.,  nefndarmaður í skilanefnd Landsbankans
Hrafn Bragason, formaður deildarinnar, setti fundinn kl. 15:00 og bauð velkominn ræðumann fundarins Lárentsínus Kristjánsson , hrl. og formann Lögmannafélags Íslands, skilanefndarmann í skilanefnd  gamla Landsbankans.
Lárentsínus gerði í máli sínu grein fyrir atburðarásinni 7. og 8. október s.l. eftir að sett höfðu verið svonefnd  neyðarlög og þrír stóru bankarnir voru teknir yfir af ríkisstjórninni og settar voru skilanefndir til að fara með stjórn þeirra eða þess hluta þeirra sem ekki var fluttur yfir í nýjar bankastofnanir í eigu ríkisins.  Skilanefndirnar voru skipaðar af Fjármálaeftirlitinu og lúta stjórn þess.
Hann lýsti síðan hvernig skipað var málum í þeim félögum sem skilanefndirnar voru settar yfir en félögin voru sett í greiðslustöðvun í stað þess að setja þau í gjaldþrot því með greiðslustöðvun er talið að frekar verði möguleiki á að ná meiri verðmætum út úr eignum félaganna en verið hefði með gjaldþroti.  Í neyðarlögunum er ákvæði um að óheimilt sé að lögsækja bankanna til greiðslu skulda.  Ræddi hann um þetta fyrirkomulag og áhif þess.  Sömuleiðis hvernig forgangsröð krafna var ákveðin þannig að innstæðueigendur á bankareikningum eiga forgang til að fá kröfur sínar greiddar. Hann fór yfir eigna- og skuldastöðustöðu  gamla Landsbankans og stöðu IceSave reikninga og hvað sé líklegt að fáist upp í kröfur.  Þá gerði hann grein fyrir að í undirbúningi væri frumvarp um breytt fyrirkomulag á meðferð gömlu bankanna þannig að þeim verði skipuð slitastjórn.
Að loknu máli Lárentsínusar var orðið gefið frjálst og tóku nokkrir fundamenn til máls og voru bornar fram nokkrar spurningar sem ræðumaður svaraði.  Til máls tóku Hrafn formaður, Hjörtur Torfason, Sveinbjörn Hafliðason,  Jón Tómasson og Hörður Einarsson.
Formaður þakkaði ræðimanni fróðlegt og yfirgripsmikið erindi og sleit fundi kl. 16:35 

Fundur öldungadeildar 14. janúar 2009

Fundarefni: Stafsemi Útlendingastofnunar

Formaður deildarinnar, Hrafn Bragason, setti fundinn kl.15.00 og kynnti fundarefnið, starfsemi Útlendingastofnunar, og fyrirlesarann,  Hauk Guðmundsson, skrifstofustjóra í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, sem settur er forstjóri stofnunarinnar í fæðingarorlofi hins regluglega forstjóra, Hildar Dungal. 
Í erindi sínu fór Haukur yfir verkefni stofnunarinnar og lög þau og reglugerðir sem hún starfar eftir.  Gerði hann grein fyrir því hvernig dvalar- og atvinnuleyfum útlendra ríkisborgara væri háttað hér á landi.  Hvernig mismunandi reglur giltu um ríkisborgara á Evrópska efnahagssvæðinu og borgara annarra ríkja. Samkvæmt núgildandi reglum þurfa ESB borgarar aðeins að skrá sig hjá Þjóðskrá til að geta starfað hér á landi.  Þá gerði hann grein fyrir stöðu ríkisborgara utan ESB, hvernig dvalar- og atvinnuréttindum þeirra væri háttað.  Þá ræddi hann um hælisleitendur hér á landi og hvernig háttað sé um meðferð umsókna þeirra um hæli hér á landi sem pólitískir flóttamenn.  Þar kæmi fyrst og fremst til álita flóttamannasamningur Sameinuðu þjóðanna og svonefnt Dýflinnarsamkomulag Schengenríkjanna. Á síðastliðnu ári voru umsóknir um hæli hér á landi 72.  Þeim hælisleitendum sem ekki eru sendir úr landi hefur verið veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum en ekki verið fallist á að veita þeim pólitískt hæli.
Að loknum fyrirlestri Hauks tók til máls Katrín Theódórsdóttir, lögmaður, og ræddi um málefni útlendinga frá sjónarmiði þess sem tekur að sér að vinna að framgangi umsókna þeirra um dvöl hér á landi og verja þá fyrir brottvísun.  Gagnrýndi hún ýmsa þætti í framkvæmd útlendingalöggjafarinnar, sérstaklega hvað langan tíma meðferð mála þeirra tekur.  Að loknum athugasemdum hennar svaraði Haukur þeim nokkrum orðum.
Formaður þakkaði síðar ræðumönnum og sleit fundi kl.16.30

 

 


Auglýsingar


Þú ert hér:

Öldungadeild » Fundargerðir öldungadeildar 2009

Stjórnborð

Information in english Veftré Fyrirspurnir

Stjórnborð

Stórt letur Lítið letur