Lög öldungadeildar Lögfræðingafélags Íslands
Samþykkt afstofnfundi deildarinnar þann 28. nóvember 2007.
- gr. Öldungadeildin starfar innan Lögfræðingafélags Íslands. Lögheimili hennar, varnarþing og póstfang er hið sama og Lögfræðingafélags Íslands
- gr. Tilgangur deildarinnar er að gæta hagsmuna eldri lögfræðinga, fjalla um áhugaefni þeirra innan lögfræði og stuðla að auknum samskiptum meðal þeirra, svo og að efla samskipti lögfræðinga almennt.
- gr. Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að standa að fræðslu og samkomuhaldi í deildinni og með öðrum félögum innan lögfræðingasamtakanna.
- gr. Félagar geta orðið allir lögfræðingar sem náð hafa 65 ára aldri og eru í Lögfræðingafélagi Íslands.
- gr. Stofnfélagar teljast þeir sem mættu á undirbúningsfund deildarinnar 17. október 2007 eða stofnfund og þeir aðrir sem láta skrá sig í deildina innan mánaðar frá stofnfundi.
- gr. Stjórn skal skipuð þremur aðalmönnum og þremur til vara og skiptir stjórn með sér verkum. Skal einn stjórnarmaður vera formaður, annar gjaldkeri og hinn þriðji ritari. Stjórn skal kosin á aðalfundi til tveggja ára í senn, þó á þann hátt að fyrst þegar kjörið er í stjórn skulu tveir stjórnarmenn aðeins kosnir til eins árs. Heimilt er að endurkjósa stjórnarmann einu sinni.
- gr. Stjórnin hefur sér til ráðgjafar sex manna öldungaráð sem kjörið er á aðalfundi til eins árs í senn og má endurkjósa ráðsmann einu sinni. Stjórninni er heimilt að skipa nefndir til að sinna ákveðnum verkefnum.
- gr. Deildin skal gefa aðalfundi Lögfræðingafélagsins skýrslu árlega.
- gr. Heimilt er að ákveða sérstakt árgjald fyrir deildina, skal það ákveðið á aðalfundi. Hyggist stjórn leggja tillögu fyrir aðalfund um upptöku árgjalds eða breytingu á því, skal þess sérstaklega getið í fundarboði.
- gr. Aðalfund skal halda árlega í mánuðinum fyrir aðalfund Lögfræðingafélagsins og skal til hans boða með viku fyrirvara. Stefnt skal að því að halda félagsfundi kl. 15 fyrsta miðvikudag í mánuði á tímabilinu 1. september til 31. maí eða oftar ef tilefni gefst til og skal til hans boðað með dagskrá.
- gr. Aðalfund og aðra deildarfundi skal boða með bréfi, rafrænt eða í pósti, á hæfilegum fresti. Í boði til aðalfundar skal greina dagskrá og umfjöllunarefni skal tilkynna í öðrum fundarboðum.
- gr. Dagskrá aðalfundar skal vera:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Skýrsla um fjárhag.
3. Umræður um skýrslur.
4. Kosning stjórnar.
5. Kosning öldungaráðs og tveggja endurskoðenda, sé þeirra þörf.
6. Ákveðið árgjald
7. Lagabreytingar
8. Önnur mál.







