Beint á leiđarkerfi vefsins

Lög Lögfrćđingafélags Íslands

Lög Lögfræðingafélags Íslands eftir breytingar sem gerðar voru á aðalfundi 2005 og framhaldsaðalfundi 9. febrúar 2006.

1. kafli.  Heiti félags, heimili og hlutverk

1. gr. Félagið heitir Lögfræðingafélag Íslands. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
2. gr. Hlutverk félagsins er að:

  1. Efla samheldni með íslenskum lögfræðingum.
  2. Gæta hagsmuna lögfræðingastéttarinnar í hvívetna og vera í fyrirsvari fyrir stéttina gagnvart innlendum og erlendum aðilum.
  3. Stuðla að vísindalegri umræðu og rannsóknum í lögfræði.
  4. Taka þátt í samvinnu háskólamenntaðra manna á Íslandi.

3. gr. Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að:

  1. Efla tengsl milli lögfræðinga og sérfélaga þeirra hér á landi og erlendis.
  2. Efna til funda um lögfræðileg efni.
  3. Styrkja útgáfu lögfræðirita, þar á meðal tímarita um lögfræði.
  4. Efla persónuleg kynni lögfræðinga, meðal annars með því að stofna til mannfagnaðar.

II. kafli Félagsmenn

4. gr. Allir þeir sem lokið hafa grunnnámi í lögfræði (90 einingum) frá viðurkenndum háskóla eiga rétt á að verða félagsmenn.

Nú tilkynnir lögfræðingur stjórn félagsins að hann óski að gerast félagsmaður og nýtur hann þá félagsréttinda er stjórnin hefur gengið úr skugga um að hann fullnægi skilyrðum til inngöngu í félagið.

Stjórn er þó heimilt að veita manni inngöngu í félagið sem lokið hefur meistara- eða  rannsóknarnámi í lögfræði við viðurkenndan háskóla. Sá sem óskar inngöngu í félagið á grundvelli þessarar heimildar skal senda stjórn félagsins skriflega umsókn. Stjórn félagsins metur hvort nám hans og störf fullnægja þessum skilyrðum.

Heimila má laganemum og öðrum en félagsmönnum aðgang að félagsfundum, eftir því sem stjórn félagsins ákveður hverju sinni.

5. gr. Félagið getur kjörið heiðursfélaga samkvæmt tillögu frá stjórn félagsins. Tillaga um slíkt kjör skal borin fram á aðalfundi og telst hún samþykkt ef ¾ hlutar fundarmanna greiða henni atkvæði. 

6. gr. Stjórn félagsins getur vikið manni úr félaginu ef hann hefur brotið lög félagsins eða með öðrum hætti sýnt af sér háttsemi sem er andstæð hagsmunum félagsins.

Áður en tekin er ákvörðun um brottvísun skal gefa félagsmanni kost á að tjá sig um hina fyrirhuguðu ákvörðun.

Félagsmaður getur krafist félagsfundar til að bera ákvörðun stjórnar um brottvikningu hans undir fundinn. 

7. gr. Aðalfundur ákveður árgjald félagsmanna. 

III. kafli Félagsfundir

8. gr. Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins.

Aðalfund skal halda í apríl eða maí ár hvert. Til hans skal boðað með auglýsingu í blöðum
eða á annan tryggilegan hátt, með viku fyrirvara hið skemmsta, og er hann þá lögmætur.

Meiri hluti greiddra atkvæða ræður úrslitum mála, nema annars sé getið í lögum þessum, sbr. 5. og 15. gr.

9. gr. Þessi mál skulu tekin til meðferðar á aðalfundi:

  1. Stjórn félagsins gerir grein fyrir störfum félagsins.
  2. Stjórn leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins.
  3. Kosning stjórnar og varastjórnar.
  4. Kosning tveggja skoðunarmanna og tveggja til vara.
  5. Önnur mál.

10. gr. Almennan félagsfund skal halda samkvæmt ákvörðun stjórnar eða að kröfu tíunda hluta félagsmanna eða skoðunarmanns.

IV.kafli Stjórn félagsins

11. gr. Stjórn félagsins skal skipuð sjö mönnum og sjö til vara.

Leitast skal við að haga stjórnarkjöri svo að sem flestir starfshópar lögfræðinga  eigi fulltrúa í stjórninni.

Formann og varaformann skal kjósa sérstaklega en aðra aðalstjórnarmenn skal kjósa í einu lagi og skipta þeir með sér störfum. Varastjórnarmenn skal kjósa í einu lagi. 

12. gr. Stjórn félagsins ræður málefnum félagsins með þeim takmörkunum er lög þessi setja.

Stjórn félagsins getur ráðið framkvæmdastjóra til að sinna daglegum rekstri félagsins sem í þeim efnum skal fara eftir stefnu og fyrirmælum stjórnar.

Stjórn félagsins tekur nánari ákvarðanir um starfsemi félagsins og ber ábyrgð á fjárreiðum þess. Ef framkvæmdastjóri er ráðinn skal hann annast um að bókhald félagsins sé fært í samræmi við lög og venjur og að meðferð eigna félagsins sé með tryggilegum hætti.

Stjórn félagsins skuldbindur félagið gagnvart öðrum aðiljum og er undirskrift formanns nægileg til þess. Ef framkvæmdastjóri er ráðinn getur hann komið fram út á við fyrir hönd félagsins og skuldbundið það í málum sem eru innan verksviðs hans samkvæmt 2. mgr. þessarar greinar.

13. gr. Stjórnarfundi skal boða með tryggilegum hætti og hæfilegum fyrirvara.

Stjórnarfundur er ályktunarfær ef meiri hluti stjórnarmanna sækja fund. Afl atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundum. Nú eru atkvæði jöfn og ræður þá atkvæði formanns (varaformanns) úrslitum.
Gerðir stjórnarinnar skulu bókfærðar. 

V. kafli Ýmis ákvæði

14. gr. Reikningsár félagsins er frá 1. apríl til 31. mars.
15. gr. Lögum félagsins verður aðeins breytt á aðalfundi.  

Í fundarboði skal þess getið sérstaklega að tillaga til lagabreytinga verði tekin til meðferðar á fundinum og skal efni hennar lýst.

Tillögur til breytinga á lögum félagsins verða ekki teknar til endanlegrar afgreiðslu nema helmingur félagsmanna hið fæsta sæki fundinn.

Nú sækir ekki tilskilinn hluti félagsmanna aðalfund samkvæmt 3. málsgrein og skal þá efna til framhaldsaðalfundar. Er sá fundur lögmætur án tillits til fundarsóknar.

Fái tillaga til lagabreytingar samþykki meiri hluta fundarmanna öðlast hún gildi.

16. gr. Nú kemur fram tillaga um það að félaginu skuli slitið og skal hún þá sæta sömu meðferð sem tillaga til lagabreytingar, sbr.

15. gr. Á þeim fundi skal þá jafnframt tekin ákvörðun um hvernig farið skuli með eignir og skuldir félagsins.


Auglýsingar


Ţú ert hér:

Um félagiđ » Lög félagsins

Stjórnborđ

Information in english Veftré Fyrirspurnir

Stjórnborđ

Stórt letur Lítiđ letur