2025 4 Forsíða.Jpg Smelltu til að stækka

Tímarit 2025 - 4. hefti

Verð:
3.052 ISK, m/vsk
  • Vörunúmer
    7504
  • Afhendingarmáti
    Þessi vara er aðeins fáanleg með rafrænu niðurhali
  • Útgefandi
    Lögfræðingafélag Íslands

RITSTJÓRNARGREIN: SKRIFSTOFUÚRSKURÐIR DÓMARA

 

Sindri M. Stephensen, ritstjóri

 

EDITORIAL: JUDICIAL RULING WITHOUT A HEARING

 

Sindri M. Stephensen, editor

 

DOI: https://doi.org/10.33112/tl.75.4.1

 

ALGRÍMSVIÐSKIPTI OG HÁTÍÐNIVIÐSKIPTATÆKNI MEÐ NOTKUN ALGRÍMS 

Þorvarður A. Ágústsson, ákærandi hjá embætti héraðssaksóknara

Útdráttur:

Í greininni er fjallað um sjálfvirknivæðingu fjármálamarkaða með notkun algríms út frá samspili milli laga, fjármála og tækniþróunar. Viss áhætta fylgir algrímsviðskiptum og hátíðniviðskiptatækni með notkun algríms. Af þeim sökum hafa verið settar strangar reglur um notkun slíkrar tækni í MiFID II/MiFIR regluverkinu. Fjallað er um skipulagskröfur svo sem ítarlegar reglur um verðkraga og aflrofa, sem er ætlað að tryggja frekari öryggisvarnir gegn leifturhruni og kerfislægri áhættu. Seinni hluti greinarinnar snýr að notkun algrímsviðskipta á refsiverðan hátt með áherslu á hátíðniviðskiptatækni með notkun algríms samkvæmt MAR reglugerðinni. Fjallað er um samspil sjálfvirknivæðingar við ákvæði MAR reglugerðarinnar um innherjaviðskipti og markaðsmisnotkun, ásamt sérstökum viðskiptaháttum hátíðniviðskiptafyrirtækja sem snúast um að leggja fram og afturkalla mikið magn fyrirmæla á markaði til að öðlast betri þekkingu á pantanabókinni og nýta þá þekkingu til að taka stöðu á undan öðrum markaðsaðilum.

Lykilorð: Fjártækni. Verðbréfamarkaðsréttur. Efnahagsbrot. Markaðssvik. Gervigreind. 

 

ALGORITHMIC AND HIGH-FREQUENCY TRADING

Þorvarður A. Ágústsson, Deputy Prosecutor at the Office of the District Prosecutor

Abstract:

This paper discusses the risks inherent in algorithmic trading and how the MiFID II/MiFIR framework mitigates systemic risk and ensures investor protection. The trading strategies of HFT firms are discussed not only in relation to the threat an erroneous algorithm may pose to financial stability but also in the light of the positive effects arbitrage and high speed may have on an order book’s internal spread. The application of MiFID II/MiFIR is discussed in relation to rules relating to price collars for investment firms or the use of circuit breakers at trading venues along with the practice of HFT in market making. This discussion culminates in an analysis of the application of the Market Abuse Regulation in cases where trades may breach criminal provisions such as the prohibition of insider trading and market manipulation. These instances are further discussed in relation to HFT firms, supposedly providing phantom liquidity, and the practice of anticipatory trading or electronic front running. 

Keywords: Fintech. Securities Law. White Collar Crimes. Artificial Intelligence. Market Abuse.

DOI: https://doi.org/10.33112/tl.75.4.2

 

FRIÐHELGI EINKALÍFS MEÐ ÁHERSLU Á HEILSUFARSUPPLÝSINGAR OG ÞAGNARSKYLDU HEILBRIGÐISSTARFSMANNA

Gunnar Ármannsson innanhússlögmaður VHE ehf.

 Útdráttur:

Í þessari grein er fjallað um friðhelgi einkalífs með sérstakri áherslu á vernd heilsufarsupplýsinga og þagnarskyldu heilbrigðisstarfsmanna samkvæmt íslenskum rétti. Greind eru helstu lagaákvæði sem gilda um meðferð heilsufarsupplýsinga, þar á meðal stjórnarskrárvernd friðhelgi einkalífs, lög um persónuvernd, sjúkraskrár, réttindi sjúklinga og heilbrigðisstarfsmenn. Jafnframt er fjallað um undantekningar frá þagnarskyldu, svo sem vegna rannsóknar sakamála, tilkynningarskyldu og eftirlitsheimilda stjórnvalda. Sérstakri athygli er beint að hlutverki landlæknis, Persónuverndar og Sjúkratrygginga Íslands í eftirliti með meðferð heilsufarsupplýsinga. Að lokum eru tekin dæmi úr dóma- og úrskurðaframkvæmd sem varpa ljósi á hagsmunamat milli friðhelgi einkalífs og annarra þjóðfélagshagsmuna, svo sem tjáningarfrelsis og rannsóknarhagsmuna. Greinin er ætluð lögfræðingum, heilbrigðisstarfsfólki og öðrum sem starfa að persónuvernd og réttindum sjúklinga.

Friðhelgi einkalífs, heilsufarsupplýsingar, þagnarskylda, heilbrigðisstarfsmenn, sjúkraskrár, persónuvernd, réttindi sjúklinga, landlæknir, heilbrigðislögfræði.

 

DUTY OF CONFIDENTIALITY OF HEALTHCARE PROFESSIONALS

Gunnar Ármannsson General Counsel VHE ehf.

Abstract:

This article examines the right to privacy with particular emphasis on the protection of health information and the duty of confidentiality of healthcare professionals under Icelandic law. The article analyses the key legal provisions governing the processing of health data, including constitutional protection of privacy, data protection legislation, laws on medical records, patients' rights, and healthcare professionals. Exceptions to the duty of confidentiality are discussed, such as those arising from criminal investigations, mandatory reporting obligations, and supervisory powers of public authorities. Special attention is given to the roles of the Directorate of Health, the Data Protection Authority, and Icelandic Health Insurance in overseeing the handling of health information. Finally, the article draws on case law and administrative rulings to illustrate the balancing of privacy interests against other societal interests, such as freedom of expression and investigative needs. The article is intended for legal professionals, healthcare workers, and others engaged in data protection and patients' rights.

Right to privacy, health data, duty of confidentiality, healthcare professionals, medical records, data protection, patients' rights, Directorate of Health, health law.

DOI: https://doi.org/10.33112/tl.75.4.3