Aðalfundur 2026

föstudagur, 15. maí 2026

Aðalfundur Lögfræðingafélagsins verður haldinn miðvikudaginn 20. maí næstkomandi, kl. 17:00, að Efstaleiti 5, 103 Reykjavík (LOGOS lögmannsstofu). Rétt til setu og atkvæðis á aðalfundi eiga þeir félagsmenn sem staðið hafa skil á félagsgjaldi yfirstandandi starfsárs, sbr. 3. mgr. 7. gr. laga félagsins.

Dagskrá

  1. Stjórn gerir grein fyrir störfum félagsins
  2. Endurskoðaðir reikningar Lögfræðingafélagsins og Tímarits lögfræðinga lagðir fram
  3. Kosning stjórnar og varastjórnar
  4. Kosning tveggja skoðunarmanna og tveggja til vara
  5. Önnur mál