Norræna höfundaréttarþingið 2. - 4. september

föstudagur, 15. maí 2026

Norræna höfundaréttarþingið verður haldið í Hörpu 2. – 4. september næstkomandi.


Norræna höfundaréttarþingið er nú haldið í 20. skiptið og hefur Höfundaréttarfélagið, sem starfar innan vébanda Lögfræðingafélagsins, veg og vanda af undirbúningnum. 

Á þinginu verður, líkt og venja er, farið yfir þá þróun sem orðið hefur á Norðurlöndunum á sviði höfundaréttar frá síðasta þingi, og nú bætast frændur okkar í Færeyjum í hópinn og deila sinni sýn á sviðið.

Allar nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu má sjá hér: 

https://nordiccopyright.tripicalevents.com/