Nýjum lögfræðingum boðið i Lögfræðingafélag Íslands

þriðjudagur, 23. júní 2026

Í tilefni af 75 ára útgáfuafmæli Tímarits lögfræðinga bjóða Tímaritið og Lögfræðingafélag Íslands þeim sem luku meistaraprófi í lögum í vor fulla aðild að Lögfræðingafélaginu, þeim að kostnaðarlausu, starfsárið 2026-2027.

Með þessu býðst nýjum lögfræðingum kostur á að kynnast af eigin raun starfsemi Lögfræðingafélagsins, félagsins sem stendur öllum lögfræðingum opið og er eina félagið sinnar tegundar á landinu. Aðild að félaginu stuðlar m.a. að góðum tengslum við náms- og starfssystkini og auðveldar lögfræðingum að fylgjast með félags- og fræðastarfi innan stéttarinnar.

Félagsmenn njóta afsláttar af námskeiðum sem haldin eru á vegum Lögmannafélags Íslands, fræðafundum Lögfræðingafélagsins og Lagadeginum. 

Áhugasömum er bent á að skrá sig í félagið á vefsíðu félagsins: Umsókn um aðild | Lögfræðingafélag Íslands

Hafið óhikað samband ef einhverjar spurningar vakna: skrifstofa@logfraedingafelag.is