Vinnuréttarfélag Íslands er félag sérfræðinga á sviði vinnuréttarréttar og var stofnað árið 2001.

Markmið félagsins er að vinna að kynningu, umfjöllun og rannsóknum á sviði vinnuréttar, efla samskipti milli lögfræðinga sem starfa að vinnuréttarmálum, stuðla að útgáfu greina og rita um vinnurétt og vera þátttakandi í fjölþjóðlegu samstarfi vinnuréttarfélaga. 

Félagsmenn geta þeir orðið sem stuðla vilja að stefnumálum félagsins, og eru félagar í Lögfræðingafélagi Íslands. 

Vinnuréttarfélag

Mánudaginn 6. mars 2023 var ný stjórn kosin:

Formaður (til tveggja ára): Lára V. Júlíusdóttir

Aðalmenn í stjórn (til eins árs): Gunnar Björnsson og Maj-Britt Hjördís Briem.

Varamenn í stjórn til eins árs): Elín Blöndal og Magnús Norðdahl.

Samþykktir Vinnuréttarfélagsins  frá aðalfundi 2023